Atburðirnir í Washington í Bandaríkjunum hafa væntanlega ekki farið framhjá neinum í kvöld, en óeirðarseggir brutu sér leið inn í þinghúsið.
Um var að ræða stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem ætlar ekki að játa sig sigraðan. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, tjáir sig um málið á Twitter-síðu sinni í kvöld og birtir ótrúlega mynd frá mótmælunum í Washington.
Á myndinni má sjá mann, stuðningsmann Trumps væntanlega, inni á skrifstofu Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Maðurinn er búinn að koma sér þægilega fyrir í stólnum hennar og er með annan fótinn uppi á borði. Sóley deilir myndinni og segir:
„Þessi mynd vekur upp gamlan ótta frá því ég var ung, umdeild og oft hrædd stjórnmálakona. Það voru nákvæmlega svona karlar sem ég óttaðist mest af öllu.“
Þessi mynd vekur upp gamlan ótta frá því ég var ung, umdeild og oft hrædd stjórnmálakona. Það voru nákvæmlega svona karlar sem ég óttaðist mest af öllu. https://t.co/rVEHYhUlIE
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) January 6, 2021