Baráttukonan Sólborg Guðbrandsdóttir, sem meðal annars hefur vakið athygli fyrir Instagram-síðuna Fávitar, segir nauðsynlegt að hinseginfræðsla verði í öllum skólum.
Borið hefur á ýmsum skemmdarverkum þar sem skotmörkin eru til dæmis skilti og fánar vegna Hinsegin daga.
Fréttablaðið sagði frá því að fánar hefðu verið skornir niður á Hellu á dögunum og þá sagði mbl.is frá því í gær að skemmdarverk hafi verið unnin á skiltum Hinsegin daga við Austurvöll. Var krotað á sum skiltin með tölustöfunum 1488 sem notaðir eru af nýnasistum. Þá má geta þess að skemmdarverk hafi verið unnin á regnbogatröppunum hjá Grafarvogskirkju.
Sólborg deildi frétt mbl.is um skemmdarverkin á Austurvelli og sagði á Twitter-síðu sinni:
„Hvaða sturlaða ástand er í gangi?! Áttar fólk sig ekki á því að það er að berjast gegn ást og fjölbreytileika? Það er ekki vottur af e-u slæmu. Við þurfum hinseginfræðslu í alla skóla landsins. Nóg er nóg! Knús til ykkar allra sem eruð að upplifa þetta ógeð á eigin skinni.“
Hvaða sturlaða ástand er í gangi?!
— Sólborg Guðbrands (@solborgg) August 17, 2022
Áttar fólk sig ekki á því að það er að berjast gegn ást og fjölbreytileika? Það er ekki vottur af e-u slæmu. Við þurfum hinseginfræðslu í alla skóla landsins. Nóg er nóg!
Knús til ykkar allra sem eruð að upplifa þetta ógeð á eigin skinni❤️🏳️🌈🏳️⚧️ pic.twitter.com/CrANq3ekai