Sólborg fundar með Ásmundi vegna kynferðisbrota í framhaldsskólum

Ásmundur Einar Daðason, mennta-og barnamálaráðherra, ætlar að funda með Sólborgu Guðbrandsdóttur um viðbragðsáætlanir í framhaldsskólum vegna kynferðisofbeldis og áreitis.

Sólborg greinir sjálf frá þessu á Twitter reikningi sínum. Sólborg vakti sjálf athygli á því í gær á miðlinum að engar slíkar áætlanir væru til.

Fréttir af rannsókn kynferðisbrot innan veggja FSu og viðbrögð skólastjórnenda hafa vakið mikla athygli undanfarna daga. Skólastjórnendur hafa verið gagnrýndir fyrir viðbörgð sín.

Sólborg leiddi hóp sem vann skýrslu um slíka aðgerðaráætlun og skilaði menntamálaráðuneytinu á síðasta kjörtímabili. Í skýrslunni er lagt til að ráðuneytið móti viðbragðsáætlanir gegn kynferðisofbeldi í framhaldsskólum á miðlægan máta.

„Mun funda með Ásmundi Einari vonandi fljótlega til að fara yfir stöðuna. Þau vilja fara af stað með einhverjar aðgerðir,“ skrifar Sólborg í Twitter færslu.