Sólborg fengið nóg: Svona var talað um Áslaugu í kommentakerfi Vísis

Sólborg Guðbrandsdóttir, tónlistarkona og fyrirlesari svo fátt eitt sé nefnt, segist aldrei nokkurn tímann hafa séð fullorðinn karlkyns ráðherra titlaðan sem krakka, aftur og aftur.

Tilefnið er umræða í athugasemdakerfum fjölmiðlanna um Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þar er ítrekað talað um Áslaugu Örnu eins og hún sé „krakki“ og því varla takandi mark á henni. Áslaug Arna er fædd árið 1990 og verður 31 árs síðar á þessu ári.

Sólborg deilir nokkrum skjáskotum af umræðum í athugasemdakerfi Vísis á Facebook undir frétt þess efnis að hún vilji tilslakanir í sóttvörnum. Eins og sést á þeim skjáskotum sem Sólborg birtir er ítrekað reynt að tala niður til Áslaugar með því að vísa í aldur hennar:

„Meira ruglið í stelpu krakkanum“
„Hún er ekki í lagi aumingja stelpan
„Vertu róleg krakki...“
„Barnið veit af kosningum framundan“
„Þessi dómsmálaráðherra er bara krakki og veit lítið um málefni fullorðna“

„Fólki er frjálst að finnast alls konar um skoðanir dómsmálaráðherra á sóttvörnum. En hvenær er kona nógu gömul svo hægt sé að taka mark á henni? Ég hef aldrei nokkurn tímann séð fullorðinn kk ráðherra titlaðan sem krakka, aftur og aftur. Áslaug Arna er þrítug,“ segir Sólborg í færslu sinni sem margir hafa tekið undir.

Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, segir þetta til dæmis vera óþolandi. „Ungar konur eru náttúrulega bara krakkar,“ segir hún og birtir skjáskot af nokkuð niðrandi orðum konu um Áslaugu Örnu.