Sólborg Guðbrandsdóttir, tónlistarkona, fyrirlesari og stofnandi Instagram-síðunnar Fávitar, segir að ekki sé eftir neinu að bíða að leggja stóraukna áherslu á að fræða börn landsins meðal annars um eðlileg samskipti og mörk í samskiptum.
Sólborg, sem hefur verið áberandi á Twitter undanfarnar vikur, meðal annars í tengslum við seinni MeToo-bylgjuna, segir á Twitter-síðu sinni:
„Pælið í þessu: ÖLL börn á Íslandi fengju 16 ára kennslu um eðlileg samskipti, kynlíf, fjölbreytileika og mörk markvisst í gegnum alla skólagönguna. Við myndum sjá tíðni ofbeldismála snarlækka, kynsjúkdómasmit minnka, ótímabærum þungunum fækka og BETRI LÍÐAN FÓLKS. Why wait?,“ spyr Sólborg.
Sólborg var seint á síðasta ári fengin til að leiða starfshóp um eflingu kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum landsins og má því segja að Sólborg sé í fararbroddi í þessum málaflokki hér á landi.
Pælið í þessu: ÖLL börn á Íslandi fengju 16 ára kennslu um eðlileg samskipti, kynlíf, fjölbreytileika og mörk markvisst í gegnum alla skólagönguna.
— Sólborg Guðbrands (@solborgg) June 8, 2021
Við myndum sjá tíðni ofbeldismála snarlækka, kynsjúkdómasmit minnka, ótímabærum þungunum fækka og BETRI LÍÐAN FÓLKS.
Why wait?