„Í smáborginni Reykjavík er ekki hægt að sinna fólki á bráðamóttöku svo vel sé,“ segir Soffía Steingrímsdóttir, sem starfað hefur sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans síðastliðin sex ár.
Soffía vakti athygli á stöðunni á Landspítalanum í pistli á Facebook-síðu sinni, en Fréttablaðið fjallaði um efni pistilsins. Í pistli sínum viðurkennir hún að vera lúin eftir mikið álag á bráðamóttökunni undanfarin misseri.
„Já, ég er ,,lúin”. Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni síðastliðin 6 ár. Álagið hefur vaxið. Kannski vegna öldrunar þjóðar, fjölgunar ferðamanna eða af einhverjum öðrum ástæðum? Og svo má telja til heimsfaraldur,“ segir hún. Þá bætir hún við að hjartagátt hafi verið flutt yfir á bráðamóttökuna.
„Og kæru landar, alls ekki fara í geðrof eða fá sjálfsvígshugsanir efir klukkan 17 því þá er búið að loka geðdeild. Allir sem eru í bráðum vanda vegna áfengis og lyfja koma til okkar… allir sem eru beittir ofbeldi og vilja aðstoð koma til okkar. Og við vísum engum frá sem þarf á aðstoð að halda.“
Í pistli sínum spyr Soffía hvernig starfsfólk eigi að hugsa um allt þetta fólk við þessar aðstæður.
„Sjúklingar liggja á gluggalausum herbergjum ef þeir eru svo heppnir að fá herbergi, annars liggja þeir á göngunum. Dynjandi bjallan hringir látlaust sem við starfsfólk höfum ekki undan að svara,“ segir Soffía og spyr hvort þetta sé eðlilegt ástand.
„Ég hef unnið í milljónaborgum á bráðamóttöku við dálítið aðrar aðstæður þar sem við vorum ekki að reka 1-2 legudeildir til viðbótar. Þar var hægt að sinna starfi sínu. Í smáborginni Reykjavík er ekki hægt að sinna fólki á bráðamóttöku svo vel sé.“
Í lok pistilsins segist Soffía ekki vita hvað þurfi að gerast svo einhver heyri og skilji það sem starfsfólk er að segja. „En já …það má kalla það svo að við séum „lúin“,“ segir hún að lokum.