Soffía bíður enn: „Ég væri til í að fara hvert sem er, bara til að lina þjáningarnar“

„Ég væri til í að fara hvert sem er, bara til að lina þjáningarnar,“ segir Soffía Káradóttir í samtali við Fréttablaðið í dag.

Fréttablaðið greinir í dag frá skipun verk­efna­stjórnar sem á að meta til­lögur starfs­hóps um gæða­mál tengd lið­skipta­að­gerðum. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kveðst binda miklar vonir við vinnu hópsins en hópurinn er meðal annars skipaður fulltrúum frá Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heil­brigðis­stofnun Vestur­lands og Klíníkinn. Á hópurinn að ná heild­rænt utan um þá á­skorun sem felist í að stytta bið­lista eftir lið­skipta­að­gerðum.

Blaðið ræðir við Soffíu sem búsett er í Reykjavík en var ráðlagt að fara á biðlista á Akureyri, því þar væri biðin ekki nema rúmt ár, samanborið við tvö til þrjú ár í Reykjavík.

„Mér finnst frá­bært að geta farið á bið­lista á Akur­eyri en fá­rán­legt að það sé ekki löngu búið að semja við Klíníkina, en það hefur verið pólitískt mál,“ segir Soffía.

Hún sé til­búin að fara hvar sem er í að­gerð, í Reykja­vík, á Akur­eyri eða Akra­nesi. „Ég væri til í að fara hvert sem er, bara til að lina þjáningarnar.“

Soffía hefur farið viku­lega til sjúkra­þjálfara síðustu fjögur árin og heim­sækir bæklunar­lækni á sex til átta vikna fresti. „Eftir að­gerð á öðru hnénu bíður að­gerð á hinu því það er bara ekki alveg eins slæmt,“ segir hún og spyr hvort setja eigi málið í nefnd og láta það gleymast.

„Úr­ræðin eru alveg til staðar og sumt er hægt að gera strax og annað þarf að bíða en það þarf bara að létta á þessu, koma fólki út í at­vinnu­lífið og svo­leiðis,“ segir Soffía.