Snorri drullar yfir mynd Balta: „Þvílíkt og annað eins rusl“

Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson skellti sér í bíó á dögunum á Beast, nýjustu Hollywood myndina úr smiðju Baltasars Kormáks. Skemmst er frá því að segja að Snorri gekk út af sýningunni.

Myndin skartar Idris Elba í aðalhlutverki manns sem lendir í lífsháska í Afríku ásamt fjölskyldu sinni vegna ljóns sem gerir fjölskyldunni lífið leitt. Snorri er ekki hrifinn.

„Ég fékk öm­ur­lega hug­mynd í dag og ég vissi hún væri ekki góð, en var bara pínu for­vit­inn. Hug­mynd­in var að fara á nýju mynd­ina hans Baltas­ars Kor­máks sem heit­ir „Be­ast“ í kvik­mynda­húsi hérna í Par­ís,“ skrifar Snorri.

„Hand­ritið er svo heimskt að ég man ekki eft­ir öðru eins. Eina prikið sem þessi mynd fékk var að ég gekk ekki út úr bíó­inu eft­ir 10 mín­út­ur, en hefði gert það hefði ég farið einn í bíó og hefði bet­ur gert það. Því­líkt og annað eins rusl,“ skrif­ar Snorri.