Snjó­laug Bru­un er látin

Snjó­laug Bru­un lést á öldrunar­deild Land­spítalans á Vífils­stöðum síðast­liðinn laugar­dag. Snjó­laug var fædd í Reykja­vík þann 23. septem­ber árið 1931 og var því á 89. aldurs­ári.

Greint er frá and­láti hennar í Morgun­blaðinu í dag.

Snjó­laug ólst upp í Reykja­vík hjá for­eldrum sínum, Kaj Aage Bru­un sjón­tækja­fræðingi og Snjó­laugu Sigurðar­dóttur skrif­stofu­konu og hús­móður. Hún lauk námi í ljós­myndun en starfaði lengst af sem hús­móðir. Bróðir hennar er Knútur Bru­un lög­maður.

Snjó­laug giftist Bjarna Kristjáns­syni véla­verk­fræðingi og fyrr­verandi rektor Tækni­skóla Ís­lands árið 1953. Bjarni lést árið 2019. Þau eignuðust sex börn og eru af­kom­endur þeirra orðnir 48 talsins.