Heit umræða hefur skapast um sniðgöngu Húsavíkur í Facebook hópnum Kettir á Facebook, aðdáendur katta og allir dýravinir. Í rúmlega 25 þúsund manna hópnum fordæma margir bann við lausagöngu katta á Húsavík og hvetja til þess að fólk sniðgangi bæinn.
„Mig langar mest að sniðganga Húsavík eftir fremsta megni. Ég var að komast að því að lausaganga katta sé bönnuð þar. Þvílík veruleikafirra,“ skrifaði einn meðlumur hópsins í færslu um málið.
„Kötturinn hefur lifað ì samlyndi og sátt við manninn ì árþúsundir, á eigin forsendum og þjónað mikilvægum tilgangi. Þetta er stórt skref afturábak og er ein birtingarmynd þess hvernig mannskepnan er ì raun innrætt.“
Óttast eitrun
Flestir virðast sammála færslunni og gagnrýna regluna, sem sé skaðleg bæði fyrir ketti og kattaeigendur. „Hætti við að fara þangað í fyrra þegar ég var fyrir norðan í fríi - bara út af þessu og ætla að sniðganga Húsavík aftur nú í sumar. Þetta er svo ömurlegt,“ skrifar einn meðlimur hópsins.
Aðrir malda í móinn og bendir einn Húsvíkingur og kattaeigandi á að enginn eftirlitsmaður sé í bænum til að framfylgja banninu. „Það er enginn að fylgjast með lausagöngu katta og kettir eru úti alls staðar í sveitarfélaginu þannig að þetta er bara rugl regla,“ sagði hann.
Annar kattareigandi í Húsavík kvaðst þó ekki þora að leyfa útikisunni sinni að vera laus þar sem hún óttaðist að eitrað yrði fyrir dýrinu.