Snærós svarar fyrir sig: „Fréttamál og mjög eðlilegt að taka umræðuna um það líka“

Snærós Sindradóttir, einn af umsjónarmönnum Morgunútvarpsins á Rás 2, hefur svarar þeirri gagnrýni sem þáttastjórnendur fengu þegar þeir fengu Arnar Þór Jónsson, héraðsdómara og varaþingmann Sjálfstæðisflokksins, til að ræða bólusetningar barna í morgun.

Arnar Þór er sem kunnugt er lögmaður samtakanna Frelsi og ábyrgð sem hafa lagt fram kæru á hendur Lyfjastofnun fyrir að afturkalla ekki markaðsleyfi fyrir Comirnaty-bóluefnið fyrir 5-11 ára börn. Til stendur að hefja bólusetningar á börnum í næstu viku vegna Covid-19.

Sigurjón Njarðarson, sem titlar sig álitshafa, gagnrýndi RÚV fyrir viðtalið og hvatti þáttastjórnendur til að fá frekar lækni eða annað heilbrigðismenntað fólk í spjall ef ræða á um bólusetningar. Undir það tóku ýmsir.

Stefán Pálsson sagnfræðingur velti til dæmis fyrir sér hversu mörg viðtöl Arnar Þór hefði farið í á RÚV undanfarinn hálfan mánuð eða svo. „Hvað hefur Arnar Þór fengið mörg viðtöl þarna síðasta hálfa mánuðinn? Þrjú?“ Þá sagði sálfræðingurinn Hafrún Kristjánsdóttir einfaldlega: „Galið!“

Snærós svaraði býsna vel fyrir þessa gagnrýni á sinni Twitter-síðu.

„Við í Morgunútvarpinu höfum margrætt bólusetningar undanfarnar vikur og sérstaklega við fulltrúa yfirvalda. Það að félagsskapur úti í bæ fái lögmann til að kæra heimild til bólusetninga barna er fréttamál og mjög eðlilegt að taka umræðuna um það líka. Hún var gagnrýnin og skýr.“