Snærós skilur ekkert í konum upp úr sextugu: „Hvaðan kemur þessi afskiptasemi, í alvöru talað?“

Útvarpskonan geðþekka á Rás 2 Snærós Sindradóttir setur stórt spurningamerki við afskiptasemi kvenna um og upp úr sextugu. Í færslu sem hefur vakið mikil viðbrögð á Twitter segir Snærós:

„Hvað gefur fólki - afsakið, konum um og upp úr sextugu - leyfi til að ganga um samfélagið og skamma fullorðið fólk fyrir hitt og þetta? Hvaðan kemur þessi afskiptasemi, í alvöru talað?,“ spyr hún og bætir við:

„Ég myndi skilja það ef þær væru ekki alltaf að skamma mig?! Ég er þrítug ráðsett móðir og sífellt að taka á móti einhverju dissi frá sextugum konum hvert sem ég kem. Verulega þreytt dæmi.“

Snærós heldur áfram:

„Þetta er bókstaflega eina tegundin sem viðurkennir ekki átorítet mitt í heiminum. Síðan ég var 12 ára hef ég gengið um heiminn eins og einhver boss og svo leyfa þessar konur sér að koma og SKAMMA MIG fyrir að setja fætur upp á stólbök eða fyrir að standa ekki rétt í röð í Bónus.“

Mjög margir tengja við orð Snærósar, þar á meðal Píratinn Eva Pandóra sem segir:

„Ég var úti að spjalla við samstarfsfólk þegar önnur samstarfskona (60-70 ára) kemur og tekur trefilinn minn, vefur um mig og bindur vel og vandlega á brjóstunum á mér. Segir svo að ég verði nú að passa að verða ekki kalt því ég sé nú með barn á brjósti.“