Snæfríður Ingadóttir, rithöfundur, varð vitni af sorglegum atburði á Tenerife í morgun. Hún býr á eyjunni ásamt fjölskyldu sinni og var á morgunskokki á suðurhluta eyjarinnar þegar hljóp hún fram á líkflutninga flóttafólks.
„Angist heimsins er nær en maður grunar. Ég fór út að hlaupa í morgun og lögreglan stoppaði mig í götunni minni. Þar er búið að loka af allt svæðið því þar er bátur með flóttamönnum og ég sé að þeir eru búnir að vera að bera líkpokana inn í bíla. Ó, hvað þetta er sorglegt. Þessi fallegi dagur og svona byrjar hann hjá þessu fólki sem ekki hefur komist yfir hafið í leit að betra lífi,“ segir hún í færslu í hópi Íslendinga sem búsettir eru á Tenerife.
Var líklega um að ræða bát frá Afríku en aðeins 100 kílómetrar eru þar á milli. Mikill fjöldi leggur á sig ferðalagið til að freista þess að öðlast betra líf.