Smjöri lögreglunnar stolið: „Kemst alltaf upp með það“

Á slökkvistöðinni í Skógarhlíð eru sex íssápar fyrir starfsfólk og þar á slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fimm, en lögreglan sex. Hafa slökkviliðsmenn ítrekað stolist í smjörið hjá lögreglunni.

Það er Áslaug Birna nokkur, slökkviliðskona og sjúkraflutningakona, sem greinir frá þessu í skemmtilegri færslu á Twitter. Þar upplýsir hún um þða að það sé aldrei til smjör í skápum slökkviliðsmanna.

„Svo við stelum því oft frá löggunni. Ég set smjörið alltaf aftur á NÁKVÆMLEGA sama stað og ég tók það og kemst alltaf upp með það,“ skrifar Áslaug í drepfyndinni færslu.

Hún bætir við í gríni:

„Veit ekki hvernig við eigum að treysta lögreglunni að leysa glæpi ef þau geta ekki einu sinni passað upp á sitt eigið smjör.“

Enn bætist svo við söguna þegar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu svarar: „Áslaug Birna...þetta sem er í smjörboxinu er ekki smjör.“