Covid-faraldurinn er í stöðugri sókn hér á landi.
Í gær greindust 443 Covid-smit innanlands og er það langmesti fjöldi sem greinst hefur á einum degi síðan faraldurinn hófst. Fyrra met var 286 smit.
Þá greindust 51 smit á landamærunum, sem er jafn mikið og er met var slegið í fyrra, og er því heildarfjöldi smita 494.
Í einangrun eru 2.622, í sóttkví 3.159 og í skimunarsóttkví 456.
Þetta kemur fram á covid.is.