Sævar Þór Jónsson lögmaður telur að þeir sem smituðust vegna sóttvarnabrots karlmanns, sem leiddi til 107 COVID-19 smita, geti farið í skaðabótamál gegn honum ef hann braut sóttvarnalög af stórfelldu gáleysi eða ásetningi. Þetta sagði Sævar í samtali við Fréttablaðið í dag.
Lögregla rannsakar nú málið en smitin komu upp í tengslum við leikskólann Jörfa í Reykjavík. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við RÚV í gær að málið væri með grófari sóttvarnabrotum sem komið hefðu á borð lögreglu. Skýrsla verður tekin af manninum á næstu dögum.
„Ef þetta er stórfellt gáleysi eða ásetningur er þetta skaðabótamál,“ segir Sævar. Auk þess er hugsanlegt að hans mati að krefjast megi miskabóta af manninum.
„Ef einstaklingurinn er meðvitaður um að hann sé smitaður eða á að gera grein sér fyrir því af ákveðnum ástæðum en hlýtir ekki sóttvarnareglum getur það varðar bæði fangelsi og sektargreiðslum en þetta getur líka varðar þessa skaðabótaábyrgð gagnvart einstaklingum,“ segir Sævar.