Smit hjá gesti Þjóðleikhússins: Sótti sýningu á laugardag – Tólf sendir í sóttkví

Barn sem greindist með COVID-19 var gestur á Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu síðastliðinn laugardag. Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu kemur fram að ítarlegar ráðstafanir vegna sýningarhalds á tímum COVID hafi auðveldað smitrakningu. Barnið sótti sýningu sem fram fór klukkan 12 á laugardag og hafa tólf manns verið sendir í sóttkví vegna smitsins.

Barnið sat ásamt foreldri sínu á enda á fremsta bekk á sýningu á Kardemommubænum laugardaginn 20. mars kl. 12.  Það er mat rakningarteymis Almannavarna að strangar sóttvarnarreglur og ábyrg framkvæmd sýninga geri það að verkum að aðeins þurfi 12 einstaklingar að fara í sóttkví  og eru það þeir sem voru í sætum næst viðkomandi. Enginn starfsmaður þarf að fara í sóttkví,“ segir í tilkynningunni.

Þá er því bætt við að sem varúðarráðstöfun hafi leikhúsið einnig miðlað upplýsingum um gesti sem sátu í sömu sætum á síðari sýningum helgarinnar til smitrakningarteymisins . 

„Mjög hratt gekk að kortleggja alla þá sem sátu í námunda við viðkomandi og rekja mögulega smithættu. Ekki er talin ástæða til að breyta framkvæmd viðburða í Þjóðleikhúsinu umfram almennar aðgerðir sem stjórnvöld kunna að grípa til í tengslum við þróun faraldursins.“

Haft er eftir Magnúsi Geir Þórðarsyni þjóðleikhússtjóra að allt kapp hafi verið lagt á að tryggja öryggi gesta og starfsfólks síðan heimsfaraldurinn skall á. „Það höfum við gert í góðu samtali við yfirvöld, með því að fylgja ítrustu fyrirmælum og að ganga lengra en reglugerðir kveða á um.  Það sannast nú hversu mikilvægar allar þessar ráðstafanir varðandi viðburðarhald eru.  Við munum halda áfram að gera okkar besta í þessu samhengi.” segir Magnús Geir.