Starfsmaður í Sundhöll Selfoss greindist með staðfest COVID-19 smit í gær. Í frétt á vef Árborgar kemur fram að umræddur starfsmaður hafi ekki verið við vinnu síðan síðasta laugardag.
Því mun smitið ekki hafa áhrif á rekstur Sundhallarinnar að svo stödd og er laugin opin áfram fyrir gesti.
„Starfsmenn Sundhallarinnar hafa lagt mikið á sig undanfarna mánuði til að viðhalda góðum smitvörnum í lauginni svo gestir og starfsmenn séu í sem öruggustu umhverfi og verður þeim aðgerðum að sjálfsögðu haldið áfram,“ segir í fréttinni.
Fjögur innanlandssmit greindust hér á landi í gær og eru 75 manns hér á landi í einangrun. Flestir þeirra, eða 50 talsins, eru á höfuðborgarsvæðinu en 13 á Suðurlandi.