Smári McCarthy, þingmaður Pírata, segir að það eina sem tefji Borgarlínu sé fólk sem vilji rífast um eðli vandans. Nú sé tíminn til að taka ákvörðun út frá besta valkostinum.
Líkt og Hringbraut greindi frá í gær segir Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, að hugmyndir um Borgarlínu séu lausn 20. aldarinnar en alls ekki 21. aldarinnar. Nefndi hann sem dæmi fyrirtækið Beep sem gerir út mannlausar skutlur fyrir 10-12 manns.
Smári svarar Hermanni á Facebook og segir:
„Okay, Hermann. En ef við myndum henda rúmlega 10 ára undirbúningsvinnu og byrja upp á nýtt með þína lausn, þá er ég nokkuð viss um að einhver annar Hermann birtist eftir tíu ár og segir þessa lausn þína vera úrelta.“
Hann sé síðasti maðurinn til að mæla gegn því að besta fáanlega tæknin sé valin hverju sinni, en það þurfi að taka ákvörðun. „Þá er það bara þannig að einhverntímann þarf að taka ákvörðun út frá fyrirliggjandi gögnum um besta valkostinn sem er þegar í boði og ganga upp miðað við forsendur. Það var gert. Fyrir ansi löngu síðan meira að segja. Við bíðum útfærslu. Það eina sem tefur er fólk sem vill frekar rífast um eðli vandamálsins en að leysa þann hluta vandans sem allir eru sammála um.“