Smári McCarthy, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist vita upp á hár hvernig á að lama Rússa nú þegar augu heimsbyggðarinnar beinast að innrás þeirra í Úkraínu. Óhætt er að segja að lausnin sem Smári bendir á sé nokkuð óvenjuleg.
Smári segir á Twitter-síðu sinni að aðrar þjóðir geti hæglega klippt á innflutning Rússa á tóbaki. Hann bendir á að Rússar hafi flutt inn tóbak fyrir 836 milljónir dollara, vel yfir 100 milljarða króna, á síðasta ári.
Hvergi í heiminum reykja fleiri karlar en í Rússlandi en talið er að um 60% karlmanna séu dagreykingamenn.
Smári segir að Rússar framleiði einnig tóbak en það sé í svo litlu magni að það myndi aldrei duga öllum tóbaksnotendum landsins. Innan fárra vikna kæmi upp ófremdarástand meðal reykingafólks með tilheyrandi efnahags- og félagslegum afleiðingum. „Ég er ekki að grínast,“ segir hann.
Smári, sem skrifar á ensku á Twitter, segir að þetta sé vissulega ekki það eina sem aðrar þjóðir ættu að gera í þvingunaraðgerðum sínum.
Hann kemur svo inn á það að Kínverjar gætu hlaupið undir bagga með Rússum og útvegað þeim tóbak en þegar allt kemur til alls séu það aðgerðir sem þessar sem gætu virkað. „Takmarka aðgang að einhverju sem þeir verða að flytja inn, erfitt er að skipta út og margir reiða sig á.“
Want to cause Russia serious economic troubles? Ban imports on HS code 24: tobacco. Russia imported $836M worth last year, and while there is some domestic production, this would within weeks lead to a panic situation with economic and social consequences. I'm not joking.
— Smári McCarthy (@smarimc) February 25, 2022