Smári McCarthy, þingmaður Pírata, fékk aldeilis að heyra það frá Nassim Nicholas Taleb, virtum fræðimanni, á Twitter í gær.
Nassim þessi hefur komið víða við en hann er þekktur ritgerðasmiður, fræðimaður og tölfræðingur svo eitthvað sé nefnt. Bók hans, The Black Swan, sem kom út árið 2007 var nefnd sem ein af tólf áhrifamestu bókunum sem komið hafa út frá lokun seinni heimsstyrjaldar, samkvæmt umfjöllun sem birtist í Sunday Times. Nassim er vinsæll á Twitter og eru fylgjendur hans 674 þúsund talsins.
Til að gera langa sögu stutta skrifaði Nassim færslu á Twitter þar sem hann færði þau rök að það væri siðferðislega rangt að endurgreiða námsmönnum námslán án þess að endurgreiða þeim sem greiddu fyrir skólagöngu sína úr eigin vasa.
Smári blandaði sér í umræðuna undir færslu Nassim og sagði að röksemdarfærsla hans gengi ekki upp. Samkvæmt sömu rökum væri siðferðislega rangt að ráðast í hvers konar stefnu- eða reglugerðarbreytingu sem bætir lífsgæði þeirra sem nota tiltekna þjónustu í dag án þess að hún afturvirkt bæti lífsgæði þeirra sem notuðu þjónustuna áður. „I call bullshit,“ sagði Smári í lok færslu sinnar.
Nassim brást ekki vel við þessari athugasemd Smára og sagði hann hafa misskilið færsluna. Orðrétt sagði hann: „You fail to get what "retrospective" means. This concerns contemporaneous cohorts. THink before tweeting. Sophistry is very dangerous in politics,“ sagði Nassim sem sakaði Smára um rökleysu og útúrsnúning. Það væri hættulegt veganesti í stjórnmálum.
Smári lagði ekki árar í bát heldur svaraði fræðimanninum fullum hálsi. Gagnrýndi hann Nassim fyrir að vitna í orð sem hann notaði ekki einu sinni. „Vel gert. Samt er það ég sem legg stund á rökleysu.“
Nassim brást ekki vel við þessu frá Smára og notaði orðið „imbecile“ tvisvar, en það þýðir „heimskingi“, „auli“ eða „fáviti“ samkvæmt orðabók. Velti hann því fyrir sér hvernig einhver eins „heimskur“ og hann komst eiginlega á þing hér á landi.
„Imbecile, imbecile, YOU are doing it again. It is sophistry to nitpick on "retroactive" and retrospective when the meaning is there: flowing back in the past. How can someone so stupid as you get into parliament?“
Smári sagði að fólk hefði einfaldlega kosið hann en á móti velti hann fyrir sér hvernig einhver eins reiður og hann hefði fengið útgáfusamning og gefið út bækur. „Ég kom fram með gagnrýni og þú ferð beint í upphrópanir í stað þess að eiga eðlilegt samtal.“
Orðaskipti þeirra Smára og Nassims má sjá á Twitter hér að neðan:
By that logic, *no* policy changes that improve quality of life for those using a service today that doesn't retroactively improve quality of life for those using it before can be considered moral. I call bullshit.
— Smári McCarthy (@smarimc) November 17, 2020