Stjórn Smárakirkju, áður Krossinn, segir í yfirlýsingu að einstaklingur sem starfaði innan hreyfingarinnar og braut á Steinunni Önnu Radha hafi starfað þar í um þrjá mánuði og að brotin hafi átt sér stað eftir að hann hætti að starfa sem unglingaleiðtogi. Þetta kemur fram í fréttFréttablaðsins.
„Honum var vísað úr þjónustu fyrir gamaldags og úreltra viðhorfa og óeðlilegra stjórnunarhátta,“ segir í yfirlýsingunni en fjallað var um málið í nýjasta þætti Kompás á Vísi í gær þar sem umfjöllunarefni var ofbeldi innan trúarhreyfinga á Íslandi. Þar stigu nokkrir aðilar fram og sögðu frá ofbeldi innan Krossins, Fíladelfíu, Kirkjulækjarkots og Frelsinu.
Í yfirlýsingu Smárakirkju segir að kirkjan taki allt ofbeldi alvarlega og að þau harmi upplifun Steinunnar í unglingastarfi kirkjunnar. Í yfirlýsingunni segir að eftir að Steinunn hafi sett sig í samband við kirkjuna við lok árs 2015 og upplýst þau um samskipti hennar við manninn, og ofbeldið sem hann beitti hana, hafi þau stutt hana og hvatt hana til að leita réttar síns.
Þá kemur fram að kallað hafi verið til þverkirkjulegt fagráð og að þau hafi fylgt þeirra leiðbeiningum í einu og öllu.
„Formaður stjórnar Smárakirkju bar að eigin frumkvæði vitni fyrir dómi um hvar kynni þeirra hófust og dró engan fjöður yfir þann aðstöðumun sem var á milli þeirra við upphaf kynna. Þessar upplýsingar má nálgast í dómskjölum málsins,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Þá hafnar stjórn Smárakirkju því að söfnuðinn sé hægt að skilgreina sem sértrúarsöfnuð „í samhengi við öfgafull dæmi af bandarískum ofbeldishreyfingum“ og að um sé að ræða íslenska fríkirkju.