„Það var alltaf allt mögulegt fyrir hann. Hann hafði mikil áhrif á alla,“ segir sambýliskona Nicola Bellavia sem var einn þeirra fjögurra sem lést þegar flugvél fórst í Þingvallavatni í síðustu viku.
Sambýliskona hans ræðir við belgíska fjölmiðilinn HLN og fjallar Fréttablaðið um viðtalið á vef sínum. Segir hún að hann hafi heyrt í henni skömmu fyrir flugtak og hljómað „hamingjusamur og grunlaus“.
„Það var alltaf allt mögulegt fyrir hann. Hann hafði mikil áhrif á alla sem hittu Nicola erlendis,“ segir hún en parið hafði verið saman í sex ár. Á Instagram-síðu hennar má sjá að þau ferðuðust mikið saman en Bellavia var 32 ára þegar hann lést og afar vinsæll á samfélagsmiðlum.
Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að lögregla muni í dag hefja uppsetningu búnaðar við Þingvallavatn svo hægt sé að ná líkum mannanna fjögurra úr vatninu og vonandi flugvélinni einnig.
Þá kemur fram að fjölskylda hjólabrettakappans Josh Neuman, sem lést í slysinu, hafi minnst hans á samfélagsmiðlum í gær.
Þau sögðu hann hafi látist við að gera það sem hann elskaði. Skömmu fyrir slysið hafi hann átt einn hamingjusamasta dag lífs síns.
„Hann var nýbúinn að sjá norðurljósin á Íslandi í fyrsta skipti og lýsti þeirri upplifun sem hamingjusamasta deginum í lífi sínu,“ segir í færslu fjölskyldunnar.