Um hópsmitið á Landakoti segir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld: „Það sem gleymist stundum í umræðunni um hópsmitið á Landakoti er að okkar heilbrigðiskerfi og þá sérstaklega Landsspítalinn sem stóð sig alveg einstaklega vel í þessum faraldri. Þau settu upp þessa Covid göngudeild sem fylgdist með sjúklingum, sem hringdi í þá daglega, höndluðu þá ekki bara af mikilli fagmennsku heldur mikilli hlýju og veittu þeim mikinn stuðning og vinnan á gjörgæsludeildinni tókst alveg stórkostlega þannig að slysið á Landakoti er mjög grátlegt og það er frávik frá því sem sást í starfsemi Landsspítalans almennt. Þetta finnst mér mjög sárt að þurfa að viðurkenna að það hafa orðið mistök en það má ekki gleyma því að Landsspítalinn, áður en faraldurinn kom, hann rétt hélt höfði upp úr vatni“, Segir Kári.
„Svo kemur faraldurinn, þannig að menn voru dálítið á kafi. Þegar menn vinna undir þeim kringumstæðum er hætta á að mistök eigi sér stað“.
Landsspítalinn hefur farið yfir öll gögn og sent til Landlæknis sem hefur sett á fót teymi til að fara yfir hvað olli smitunum og dauðsföllunum tengdum Landakoti.
Kári segir að þegar rýnt hafi verið í Landakotssmitið sé brýnt að setja heilbrigðisstarfsmenn ekki í ómögulega stöðu í framhaldinu. „...að þeir verði ekki settir í þá stöðu að bera smit á milli sjúklinga“, segir Kári.