Slúður Eiríks vekur athygli: Björgólfur og Gylfi með leynisamning?

Eiríkur Jónsson, einn þekktasti fjölmiðlamaður Íslands, birti áhugavert slúður á heimasíðu sinni, Eirikurjonsson.is, í dag.

„Sagt er og mikið rætt í boltaheimi að fyrir liggi uppkast að samningi á milli auðkýfingsins Björgólfs Thor og knattspyrnusnillingsins Gylfa Þórs hjá Everton um að Gylfi komi heim og leiki með KR eftir tvö ár eða svo.“

Gylfi er einn besti leikmaður Íslands frá upphafi og hefur hann verið í aðalhlutverki í frábærum árangri landsliðsins á undanförnum árum. Hann hefur leikið 78 landsleiki og skorað í þeim 25 mörk. Það er aðeins tímaspursmál hvenær hann bætir markametið. Gylfi hefur einnig átt frábæran tíma á Englandi og spilað með liðum eins og Reading, Swansea, Tottenham og Everton.

Óvíst er hvort nokkuð sé til í þessum vangaveltum en þær eru engu að síður áhugaverðar. Bent er á að Gylfi hafi nýverið talað um að hann dreymi um að flytja aftur heim til Íslands þegar atvinnumannsferlinum lýkur á Englandi. Gylfi er orðinn 31 árs og hefur hann búið erlendis meiri hluta ævi sinnar.

Gylfi spilaði með FH og Breiðablik áður en hann hélt ungur út í atvinnumennsku. Það er ljóst að hann yrði mikill hvalreki fyrir íslenska boltann og það lið sem fær hann til sín.

Þá er bent á það í frétt Eiríks að Björgólfsfeðgar hafi lengi haft taugar til KR og var Björgólfur Guðmundsson til að mynda formaður félagsins um langt skeið.