Skýrsla um neyðarlán sem Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi í október 2008 verður loks birt 30. apríl. Þetta staðfestir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í viðtali í ViðskiptaMogganum í dag.
Már segir að skýrsla bankans um neyðarlánið sem veitt var Kaupþingi og söluna á FIH-bankanum, sem tekinn var að allsherjarveði í tengslum við lánveitinguna, verði birt opinberlega þann 30. apríl næstkomandi. „Hún verður fyrst kynnt í bankaráði sem næst fundar 26. apríl. Svo verður hún kynnt opinberlega. Það er margt sem hefur tafið þessa vinnu en nú er þetta að hafast og einfaldlega verið að ganga frá lausum endum.“
Um tafirnar og af hverju óskað hafi verið upplýsinga frá Kaupþingi um hvað lánið fór í fyrst undir lok síðasta árs í segir Már að það verði að horfa til þess að skýrslan hafi einungis átt að fjalla um söluna á FIH-bankanum. „Í kjölfar mikillar umræðu opinberlega um neyðarlánið var ákveðið að ráðast í skoðun á því máli einnig. Þannig voru aðrir hlutir í forgrunni, ekki síst mjög tímafrek atriði til skoðunar er vörðuðu söluna á bankanum.“