Skúli hjólar í Óttar: „Ég vona svo sannarlega að þetta séu ekki ráðin sem þú gefur þínum skjólstæðingum“

Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW air, sendir Óttari Guðmundssyni geðlækni tóninn í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun.

Óttar skrifaði pistil í helgarblað Fréttablaðsins um liðna helgi sem vakti talsverða athygli, en í honum gagnrýndi hann ferð fyrirmanna Sjálfstæðisflokksins í sjóböð Skúla sem hann opnaði nýverið í Hvammsvík. Líkti hann heimsókninni við heimsókn Bjarna Benediktssonar á listasýningu í Ásmundarsal sem talsvert fjaðrafok var út af á sínum tíma.

Sjá einnig: Óttar Guðmunds gagnrýnir partíhald sjálfstæðismanna: Hvað varð um hugtök eins og „pólitísk ábyrgð“?

Skúli svarar skrifum Óttars fullum hálsi og byrjar grein sína á þeim orðum að hann leggi nú ekki í vana sinn að svara misgáfulegum skrifum um sig eða WOW. Pistill Óttars hafi aftur á móti verið svo fullur af rangfærslum og dylgjum að hann eigi erfitt með að láta kyrtt liggja. Fyrir utan það segir Skúli að boðskapurinn í pistlinum hafi verið fyrir neðan allar hellur.

„Aðalinntak greinar þinnar virðist vera að ráðherrar hafi gert stórkostleg mistök með því að koma í opnun á Sjóböðunum í Hvammsvík þar sem ég, samkvæmt þinni skilgreiningu, er gjaldþrota auðmaður og hvernig dettur þeim í hug að sýna sig með slíkum manni? Hér eru sem sagt skilaboðin þau að ef einhverjum mistekst þrátt fyrir að hafa átt farsælan feril þá ber að hafna viðkomandi, setja til hliðar og útskúfa. Að sama skapi, átti undirritaður að gefast upp og leggjast í kör og hætta frekari frumkvöðlastarfsemi og uppbyggingu? Ég vona svo sannarlega að þetta séu ekki ráðin sem þú gefur þínum skjólstæðingum,“ segir Skúli og bætir við að hann sé í dag hvorki gjaldþrota né auðmaður – enda erfitt að vera hvort tveggja á sama tíma.

„Ég var vissulega nærri persónulegu gjaldþroti eftir fall WOW enda lagði ég allt undir og meira til og var í gríðarlegum persónulegum ábyrgðum. En þökk sé góðum vinum, fjölskyldu og mikilli vinnu hefur mér tekist að vinna mig upp á nýjan leik og vona að ég geti verið fyrirmynd í því að gefast ekki upp þó að á móti blási. Ég hef verið mjög lánsamur að vinna ítrekað með frábæru fólki og komið að uppbyggingu tuga fyrirtækja sem mörg hver þóttu ekki mjög lífvænleg þegar farið var af stað,“ segir Skúli í grein sinni og nefnir OZ máli sínu til stuðnings. Fyrirtækið var selt til Nokia fyrir metfé á þeim tíma. Hann nefnir Íslandssíma sem lifir enn undir merkjum Sýnar og endurreisn MP Banka, nú Kviku. Hann fer svo yfir WOW-ævintýrið og bendir á að félagið hafi skilað gríðarlegum verðmætum inn í samfélagið.

„Ég er ekki að rifja þessa sögu upp til að slá mig til riddara heldur eingöngu að benda á rangfærslur í skrifum þínum og hversu vafasamur boðskapurinn er sem leynist í honum,“ segir Skúli í grein sinni í Fréttablaðinu og bætir við að augljóslega eigi líka að koma ódýru höggi á ráðherra fyrir að sýna sig „með svona óráðsmanni“.

„Ólíkt þér þá tel ég það bráðnauðsynlegt að íslenskir ráðamenn styðji við atvinnulífið, búi því til umgjörð og farveg þannig að þar eigi sér stað eðlileg samkeppni, uppbygging og nýsköpun, sama hvaða flokki þeir tilheyra. Það er okkur sönn ánægja að bjóða þér í heimsókn til okkar í Hvammsvíkina og kynna fyrir þér þá uppbyggingu sem á sér stað í Hvalfirðinum.“