Skúli birtir ó­hugnan­lega töl­fræði um ung­lings­stúlkur sem allir for­eldrar þurfa að hafa í huga

„Helmingur stúlkna í 8.-10. bekk grunn­skóla hefur verið beðinn um að senda eða deila af sér nektar­mynd. Þar af voru 12% til­búin til þess að segjast hafa orðið við slíkri beiðni. Í lang­flestum til­fellum, eða tæp­lega 7 af hverjum 10, fengu stúlkurnar beiðnina frá ó­kunnugum ein­stak­lingi á netinu,“ svona hefst pistill Skúla Braga Geir­dals á Vísií dag.

Skúli er verk­efna­stjori miðla­læsis hjá Fjöl­miðla­nefnd en hefur áður varað við var­huga­verði hegðun ung­menna á netinu.

„Ekki tala við ó­kunnuga úti á götu“ sögðu for­eldrar mínir við mig þegar ég var barn. Síðan hefur margt breyst. Wi-Fi, iP­hone og sam­fé­lags­miðlar voru ekki til þegar að ég fæddist fyrir 30 árum síðan. Nú þarf ég ekki lengur að fara út til að hitta ó­kunnuga ein­stak­linga. Ég þarf ekki einu sinni að tala við þá áður en ég sam­þykki þá sem vini og hleypi þeim þar með í mynda­albúmin mín og alls konar per­sónu­legar upp­lýsingar. Áður en ég veit af er ein­hver farinn að senda mér skila­boð sem ég hef aldrei séð og veit í raun ekkert hvort við­komandi er sá sem hann segist vera. Er þetta þitt raun­veru­lega nafn? Er þetta mynd af þér? Þekki ég þig kannski sem ein­hvern annan? Já, leikurinn hefur breyst tölu­vert varðandi sam­skipti við ó­kunnuga síðan ég var barn,“ skrifar Skúli.

„Fólk byrjaði að biðja mig um nektar­myndir þegar ég var 9 ára og þá vissi ég ekki að ég gæti sagt nei því að þetta var full­orðið fólk og ég hélt að ég ætti alltaf að hlusta að það sem full­orðnir segja sama hvað.“ Þetta er hluti úr við­tali sem ég tók í tengslum við gerð fræðslu­mynd­banda fyrir mið­stig grunn­skóla. „Nennirðu plís að senda nektar­mynd, annars mun ég drepa mig, skaða mig eða finna hvar þú átt heima.“ Eftir að hafa fengið þessi skila­boð sendi þetta barn ó­kunnugum ein­stak­lingum nektar­myndir í gegnum sam­fé­lags­miðla og veit í dag ekkert hvort þeim hefur verið deilt á­fram. „Ég vissi ekki að þetta væri rangt. Ég vissi ekki betur. Það var enginn búinn að kenna mér það.“

Þá hefur tæp­lega fjórðungur stráka í 8.-10. bekk grunn­skóla hefur verið beðinn um að senda eða deila af sér nektar­mynd.

Í 3 af hverjum 10 til­fellum voru það ó­kunnugir af netinu sem sendu beiðnina. Í þeim til­fellum þar sem ekki var um ó­kunnugan ein­stak­ling að ræða þá voru þetta vinir, kærastar/kærustur eða ein­staklingar sem þau höfðu komist í kynni við í gegnum netið eða stefnu­móta­síður. Þá ber að hafa í huga þá á­byrgð sem fylgir því að fá senda nektar­mynd því slíka mynd má aldrei senda á­fram nema með fullu sam­þykki þess sem er á myndinni.

Hægt er að lesa grein skúla í heild sinni hér.