Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins sneri aftur til vinnu sinnar á Alþingi í gær eftir erfiða krabbameinsmeðferð sem stóð yfir allt frá útmánuðum í fyrra og fram í síðasta mánuð þegar hún fékk loks þau tíðindi að hún væru læknuð – og að boðflennan væri farin.
Hún lýsir lífsreynslu sinni í einstaklega einlægu og hispurslausu viðtali í frétta- og umræðuþættinum 21 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld; hvernig hún valdi sína leið í gegnum veikindin, meðal annars með því að bjóða eitrið velkomið í skrokkinn þegar hún var í lyfjameðferðunum. En vissulega hafi margt verið erfitt á leiðinni til bata, sumt afar skrýtið og enn annað jafnvel broslegt, svo sem að horfa á sig skollótta og hnöttótta eftir geislameðferðina, en telja sér jafnframt trú um að það mætti allt eins skella sér á útskriftarafmæli Verzlinga, svona upp á stuðið eitt og sér. Og hvað margir hafi þar sagt hana líta vel út, ítrekað einmitt hvað hún væri glæsileg, sem hún vissi náttúrlega að gat ekki staðist, en hún sé þakklát fyrir uppörvunina, skilji inntak hvatningarinnar – og auðvitað megi hlæja að þessu öllu saman eftir á, að því að hún hafði sigur.