Skötu­leit fyrir pabba endar með skondnum ruglingi – hef fulla sam­úð með þeim þurfa að svara svona vit­leysu

Nú styttist óðum í jólin en fyrst þarf vissu­lega að fá sér skötu á Þor­láks­messu. Fjöl­margir nýta tæki­færið og fá sér skötu á veitinga­stöðum bæjarins en ekki eru allir veitinga­staðir sem bjóða upp á þennan merki­lega fisk.

Ást­ríður Péturs­dóttir á­kvað því að að­stoða föður sinn við að finan út út úr því hvaða staðir væru með skötu á borð­stólunum á Þor­láks­messu.

„Pabba langar í skötu á Þor­láks­messu og ég sendi tölvu­­póst á nokkra veitinga­­staði hér í bæ með þessari fyrir­­­spurn. Hef bara fulla sam­úð með að­fluttum Ís­­lendingum sem þurfa að svara svona vit­­leysu, enda borða ég ekki skötu,“ skrifar Ást­ríður og birtir skjá­skot af sam­skiptum sínum við veitinga­stað í bænum.

Mynd að ofan tengist frétt ekki beint.