Vopnaður karlmaður er enn inni í íbúð í fjölbýlishúsi við Miðvang 41 í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í Fréttablaðsins.
Lögreglan fékk tilkynningu um mögulega skotárás klukkan 20 mínútur í átta í morgun. Íbúi í fjölbýlishúsinu var á svölunum sínum vopnaður skotvopni og hafði skotið á bíl sem var lagt fyrir aftan verslun Nettó. Samkvæmt sjónarvottum sem Fréttablaðið ræddi við skaut maðurinn af fjórum sinnum.
Búið er að loka fyrir umferð inn Miðvang og fólki og íbúum meinað aðgang að svæðinu. Á svæðinu eru fjórir lögreglubílar, fjögur mótorhjól, tveir sjúkrabílar og sérsveitarbíll.
Lögregluþjónn sagði við Fréttablaðið að karlmaður í fjölbýlishúsi bak við Nettó hafi skotið úr vopni frá svölum sínum og hæft bíl sem hafði verið lagt fyrir aftan verslunina. Verið er að vinna að því að ræða við manninn.
„Þetta er ekki öruggt,“ sagði lögregluþjónninn við Fréttablaðið aðspurður hvort búið væri að tryggja svæðið.
Eigandi bílsins sem skotið var á í morgun er nú í skýrslutöku hjá lögreglu. Hann er ekki særður að sögn lögreglu. Aðspurður um tengsl mannanna sagðist lögreglufulltrúi ekki geta veitt upplýsingar um það.