Skotför á glugga Hannesar og nafnlaus bréf með hvítu dufti

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að hann hafi oft orðið fyrir hótunum og hatursorðræðu í gegnum tíðina. Þá hafi hann eitt sinn komið heim og séð skotför í stofuglugganum sínum.

„Mér datt hins vegar ekki í hug að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta,“ segir Hannes og vísar þar líklega til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem tjáði sig um skotárás sem gerð var á bílinn hans nýlega.

Hannes deilir gamalli grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur frá 2011 á Facebook en í henni fordæmdi Kolbrún þá ósmekklegu umræðu sem finna mátti á þeim tíma í kommentakerfinu um Hannes.

„Einn náunginn líkti mér meðal annars við Breivik, norska fjöldamorðingjann,“ skrifar Hannes. „Ég fékk mörg nafnlaus hótunarbréf, sum með hvítu dufti, að mér var veist á almannafæri, og skotför sáust eitt sinn í stofuglugganum heima hjá mér. Mér datt hins vegar ekki í hug að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta.“

Hér andmælti hinn snjalli blaðamaður Kolbrún Bergþórsdóttir fyrir nokkrum árum hatursorðræðunni um mig, en einn náunginn...

Posted by Hannes Hólmsteinn Gissurarson on Saturday, 30 January 2021