Skotárás á strandklúbbi á Costa del Sol- Nokkrir særðir

Fimm eru særðir eftir skot­á­rás og hnífs­tungu á strand­klúbbi í Mar­bella á Costa Del Sol á Spáni.

Lög­regla á svæðinu segir að fjórir hafi verið færðir á spítala með skot­sár snemma í morgun. Lög­reglan segist hafa hand­tekið á­rásar­manninn, sem er af hollensku bergi brotinn. Irish Times greina frá málinu.

Sá var með stungu­sár á höfði og bringu eftir á­rásina. Lög­reglan verst allra frétta en segir til­drög á­rásarinnar til rann­sóknar.

Talið er að um átök milli tveggja hópa hafi verið um að ræða á VIP svæði strand­klúbbsins. Skot­maðurinn er sagður hafa verið rekinn út af klúbbnum ör­skömmu áður en hann lét til skarar skríða með skot­vopnið.