Myndir Helga Sigurðssonar, skopmyndateiknara Morgunblaðsins, hafa stundum vakið hörð viðbrögð og er óhætt að segja að mynd hans í dag veki ekki síður viðbrögð.
Mál tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar, sem er einnig þekktur undir nafninu Ingó veðurguð, hafa verið í deiglunni undanfarna daga og er Ingó einmitt viðfangsefni Helga á síðum Morgunblaðsins í dag.
Á myndinni má sjá Ingó með gítar í hönd og veðurkort við hlið sér líkt og hann sé að segja fréttir af veðri. Við hlið hans er svo talblaðra þar sem stendur: „Það gengur á með svæsnum sögum af kynferðisofbeldi og mikill hiti er í kortunum sem gæti endað í galdrabrennum á Suðurlandi.“ Undir myndinni stendur svo: „Öfgar ákvarða sekt uns sakleysi er sannað.“
Mörgum þykir Helgi fara yfir strikið með mynd sinni og taka afstöðu með Ingólfi í málinu. Hefur myndin þegar vakið nokkur viðbrögð á Twitter og er Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, einn þeirra sem tjáir sig um hana.
🎵 Og Moggaskrípó sem langbest væri að henda 🎶 pic.twitter.com/Cj7GlO8Yrn
— Andrés Ingi (@andresingi) July 5, 2021
Vá hvað þetta er súrt.
— Sveinn Atli (@svatli) July 5, 2021
oj hvað þetta er viðbjóðslegt
— Eva Karls (@evakarls) July 5, 2021
Hann er nú oft á gráu svæði þarna. https://t.co/Jz79TudVBe
— Andrés Ingi (@andresingi) July 5, 2021
Ég skil ekki neitt. Hver horfir á þetta og hugsar "Já þetta er frábært! Í blaðið með þetta!" ?
— Eva Karls (@evakarls) July 5, 2021
Sama fólk og finnst sögur tuga þolenda vera galdrabrennur.
— Andrés Ingi (@andresingi) July 5, 2021