Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla og formaður skólastjórnendafélags Vesturlands segir að svo virðist vera skólastofnanir séu gerðar ábyrgar fyrir öllu sem misferst í samfélaginu.
Tekur Sigurður dæmi um erfiðar forræðisdeilur sem fjallað er um í fjölmiðlum, vaxandi rasíska orðræðu, eineltismál, stuldur ungmenna í stórmarkaði, hópslagsmál ungmenna á leiksvæði um helgi, og vaxandi áhyggjur af tölvu og símafíkn barna og ungmenna.
„Áfram mætti lengi telja en það sem þessar fréttir eiga sameiginlegt er að í umræðu í tengslum við þær er alltafspurt: Hvað ætlar skólinn að gera?“ spyr Sigurður í aðsendri grein á Vísi.
Sigurður segir skólastofnanir mikilvægar en að gera þær ábyrgar fyrir öllu sem misfarist sé einkennilegt svo ekki sé sterkara til orða tekið eins og hann lýsir því. Hann segir sjaldan eða aldrei verið eins flókið að ala upp barn.
„Skólar og starfsmenn þeirra ætla ekki að elta niðurrifstal, sleggjudóma og á köflum hreinan dónaskap á samfélagsmiðlum. Á slíku er ekkert gott að byggja. Ég fullyrði að skólafólk vill vinna með nemendum sínum, foreldrum og skólasamfélaginu í að skapa betra samfélag. Áskoranir nútímans eru ekki einkamál skóla heldur okkar allra. Til að skólar verði enn betri menntastofnanir og veiti betri þjónustu þarf aðhald en fyrst og fremst samvinnu, velvild og stuðning.“