Skólameistari FG: „Engin spurning að skrif Páls hafa valdið skólanum tjóni“

Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ, segir að skrif Páls Vilhjálmssonar, bloggara og kennara við skólann, hafi valdið skólanum tjóni.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að staða Páls við skólann verði óbreytt, en bloggskrif hans um Helga Seljan, fréttamann RÚV, vöktu athygli fyrr í mánuðinum. Helgi hafði opnað sig um andleg veikindi í Vikunni hjá Gísla Marteini eftir Samherjamálið, en Páll brást við með því að skrifa pistil þar sem hann sagði meðal annars ótækt „að geðveikur maður fari með víðtækt dagskrárvald á ríkisreknum fjölmiðli.“

Kristinn er í ítarlegu viðtali í Morgunblaðinu í dag þar sem farið er um víðan völl og meðal annars snert á máli Páls. Í viðtalinu viðurkennir Kristinn að um ákaflega flókið mál sé að ræða.

„Hvenær fara skrif starfsmanna í frítíma sínum að hafa áhrif á störf þeirra sem framhaldsskólakennara? Við þessu er ekkert einfalt svar. Málfrelsi er hornsteinn lýðræðisins og mjög erfitt að setja tjáningu manna skorður. Jafnvel þótt maður sé ákaflega ósammála skrifum þeirra. Samt er það svo að það er einhver lína. Nemendur þurfa að geta treyst því að þeir njóti sanngirni innan skólans og eiga rétt á því að líða vel í skólanum,“ segir Kristinn meðal annars. Hann heldur áfram:

„Hvernig á svo að meta hvenær einhver er farinn yfir línuna? Það er engin spurning að skrif Páls hafa valdið skólanum tjóni. Gefur það mér rétt til að hrófla við starfi hans hér í skólanum? Líklega ekki. Starfsöryggi opinberra starfsmanna er mikið og mér er ekki kunnugt um að opinberum starfsmanni hafi verið sagt upp vegna skrifa á opinberum vettvangi og það staðist fyrir dómi. Nemendur og forráðamenn fá bréf þar sem sjónarmið skólans eru sett fram. Hvort mönnum finnist nóg að gert eða of mikið verður svo bara að koma í ljós,“ segir hann.