Frá því klukkan níu í gærkvöldi hafa um 1200 skjálftar mælst þar af sex stærri en þrír. Rétt fyrir hálf þrjú í kvöld mældist skjálfti upp á upp á 5.0 við Kleifarvatn.
Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafa fundist á Grundarfirði, Akranesi, Borgarfirði, Reykjanesbæ, á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Meðfylgjandi er áhrifakort skjálftans.
Þá mældist einn skjálfti um 3,1 rétt yfir 6 í morgun.