Skip­verjanum sem braut sótt­kví lík­lega fyrir­gefið: „Ungur maður ný­kominn úr fæðingar­or­lofi“

Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík, sem gerir út línubátinn Fjölni GK, telur allar líkur á því að skipverjanum sem braut sóttkví verði fyrirgefið.

Níu skipverjar þurftu að sæta einangrun og sóttkví í línubátnum Fjölni GK eftir að skipverjinn greindist með Covid-19 við seinni landamæraskimun. Eftir að hafa fengið neikvæða niðurstöður úr fyrri skimun fór maðurinn um borð í skipið og braut því sóttkví. Síðar kom í ljós að smitið væri gamalt.

Í samtali við Mannlíf segir Pétur að eftirmálar vegna málsins séu í höndum skipstjóra línubátsins. „Ég held að hann sé ekki búinn að taka neina ákvörðun enn þá.“ Verið sé að skoða málið.

Alarleg mistök en mannleg

„Þetta var yfirsjón hjá honum þannig hann braut reglur fyrirtækisins og traust skipstjóra. Það gera sér allir grein fyrir því að það er alvarlegt, hann þar á meðal,“ segir Pétur sem ber manninum þó góða söguna.

„Þetta er ungur maður sem er nýkominn úr fæðingarorlofi, frá ungu barni og konu þegar honum verður þetta á,“ ítrekar framkvæmdarstjórinn.

Án þess að vilja gera lítið úr alvarleikanum telur Pétur manninn hafa sér einhverjar málsbætur í málinu. „Þó þetta hafi litið mjög illa út þá erum við allir mannlegir og þarna er ungur maður sem verður á einu sinni.“