Skiptar skoðanir um stað Birgittu: „Sorry! Þetta er lágmenning“

Nýr skemmtistaður Birgittu Lífar Björnsdóttur, Bankastræti Club, opnar með pompi og prakt í kvöld en í gærkvöldi var þar húsfyllir af fólki, meðal annars af áhrifavöldum, þegar staðurinn var opnaður fyrir boðsgesti.

Staðnum er ætlað að setja ný viðmið í íslenskri djammmenningu og til marks um það verður rukkað inn eftir klukkan 22 á kvöldin og þá geta hinir efnameiri keypt svokölluð flöskuborð þar sem dýrasta flaskan er á 750 þúsund krónur eins og Hringbraut fjallaði um á dögunum. Það má því í raun segja að staðnum sé ætlað að trekkja að fína fólkið í borginni.

Í viðtali í Fréttablaðinu í gær fór Birgitta ekki í felur með það að staðurinn muni bjóða upp á hærri standard og betri þjónustu en gengur og gerist. Fólk getur keypt sér aðgang að staðnum með mánaðargjaldi, 5.990 krónur, sem felur í sér ókeypis aðgang og fimm skot á mánuði. Dýrari aðgangur, 19.900 krónur, felur í sér ókeypis aðgang fyrir viðkomandi og einn gest, aðgang að VIP-röð og afslátt á bar- og flöskuborðum.

Margir hafa fagnað komu staðarins í íslenska skemmtanamenningu og telja að kominn sé tími á slíkan stað hér á landi. Í þeim hópi er Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem segir á Twitter:

„Mér finnst æði að Birgitta Líf sé að prófa nýja stemningu í klúbbamenningu í Reykjavík. Vona að Bankastræti Club gangi vel.“

Trommuleikarinn Hannes Friðbjarnarson er ekki jafn spenntur fyrir staðnum og Katrín. „Hvaða skrýtna viðhorf er þetta samt? Það er hvergi í lagi að einhver vodka flaska eigi að kosta 50k bara svo þú fáir ekki gesti sem eiga ekki þann pening. Þetta er galin pæling. Sorry! Þetta er lágmenning,“ segir hann.

Katrín svarar því til að flöskuborð sé allt annað og meira en bara að fá sér drykki. „Þú ert líka að fá borðið og mér finnst eðlilegt að það kosti,“ segir hún.

Þá bendir einn á það að umrædd flöskuborðaverð hafi tíðkast lengi, til dæmis áður á B5. „Það eina sem hún er að gera er að auglýsa það og rukka við hurð, Ísland er ca eina landið í Evrópu með engan klúbb sem rukkar við hurð. Þetta er ekki mín sena en þetta er mjög beisik dót.“

Eins og að framan greinir eru skoðanir skiptar um staðinn og í athugasemdakerfum vefmiðlanna, þar sem fólk liggur sjaldnast á skoðunum sínum, skiptist fólk í fylkingar. Við umfjöllun DV í morgun þar sem fjallað var um opnun staðarins má til dæmis lesa þessar athugasemdir:

„Hallærislegt, minnir á grímuball.“
„Þetta virkar svo hrikalega veruleikafirrt rugl.“
„Má ungt fólk ekki skemmta sér lengur á Íslandi? Þarf að tuða yfir öllu?“ 

Mynd/ Instagram