Skiptar skoðanir á lokun Twitter á Trump: „Ef að Hitler hefði verið á Twitter hefði þá ekki átt að loka fyrir hann?“

„Bara verulega skerí shit ef þessi veita sem gefur sig út fyrir að vera neutral ætlar að fara að skipta sér að tjáningu. Eru þeir sem þarna stýra þar með að segja að þeir beri ábyrgð á öllu því sem þarna er sagt? Og hvar endar það? Ég efast um að þeir sem fagna þessu hafi reiknað dæmið til enda,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson fjölmiðlamaður á Facebook um ákvörðun samskiptamiðilsins Twitter að loka á færslur Donald Trump Bandaríkjaforseta. Ljósmyndarinn Bragi Kort spyr á móti: „Ef að Hitler hefði verið á twitter hefði þá ekki átt að loka fyrir hann?“

Trump hefur alla sína forsetatíð verið mjög virkur á Twitter, eftir kosningarnar í nóvember ákvað miðillinn að setja viðvörun á allar færslur hans um að hann hafi unnið kosningarnar, ekki Joe Biden. Eftir árásina á þinghúsið var reikningur hans frystur:

Málið er mjög umdeilt, bæði Vestanhafs og hér á landi.

Atli Fannar Bjarkason, samfélagsmiðlastjóri RÚV, segir þetta eðlilegt.

„En þegar maður skráir sig t.d. á Twitter samþykkir maður ákveðna skilmála. Hann er sagður hafa brotið þessa skilmála. Eiga þessir miðlar ekki að hafa neinar reglur um það sem notendur birta? Það eru til samfélagsmiðlar sem eru algjörlega lausir við reglur en ég er viss um að hvorki ég né þú viljum skrá okkur þar,“ segir hann í svari til Jakobs. Þá sé alvöru ástæða fyrir því að reikningurinn var frystur: „Þau sem ruddust inn í þinghúsið í gær voru að meðal annars að leita að Pence, sem Trump henti undir rútuna á Twitter.“

Jakob svarar honum fullum hálsi: „Ekkert í því sem birst hefur á reikningi Trumps nálgast það að brjóta í bága við hegningarlög. Það eru sem sagt áhrif orða hans sem Twittermenn vega og meta og ákveða á altari þess að eyða og eða loka þessum reikningi. Og hvar á að draga þá línu í sandinn? Mér finnst athyglisvert að samskiptamiðlastjóri RÚV skuli fagna svo sérkennilegum prinsippum.“

Atli Fannar svaraði honum að bragði: „Hegningarlög? Miðillinn setur sér bara reglur. Alveg eins og félagsheimili setur sér reglur um hegðun fólks sem leigir salinn.“

Gunnar Smári Egilsson, sósíalistaforingi, segir þetta ritskoðun af hálfu stórfyrirtækis. „Magnað hversu margir fagna því að þessi risafyrirtæki innleiði ritskoðun og ákveði sjálf hver fær að birta og hver ekki. Flest lönd eru með ákvæði í stjórnarskrá að ríkisvaldið megi ekki beita valdi sínu með þessum hætti, en svo fagnar fólk því þegar auðvaldið gerir það,“ segir hann. Segir Gunnar Smári að fólk sé sjálfviljugt að ganga inn í alræði auðvaldsins. „Hin svokallaða frjálslynda miðja gengur fremst, syngjandi glöð. Næst kemur goggle, facebook og twitter sér upp drónasveitum SA sem heimsækja ykkur og berja ef þið haldið ekki kjafti.“

Útvarpsstjarnan Heiðar Austmann segir í hópnum Fjölmiðlanördar það skjóta skökku við að Trump megi stjórna kjarnorkuvopnum en ekki Twitter-aðgangi:

„Trump hefur verið sviptur aðgangi sínum að samfélagsmiðlareikningum sínum en hefur ennþá fullan aðgang að kjarnorkuvopnum landsins. Sturlun.“