Hinn sívinsæli sjónvarpsmaður Auðunn Blöndal spurði fylgjendur sína á Twitter hvort tími væri kominn á nýjan Draum, viðbrögðin létu ekki á sér standa. Þættirnir um Ameríska drauminn, Suður-Ameríska Drauminn og Asíska Drauminn nutu mikilla vinsælda þegar þeir voru sýndir á Stöð 2.
Einn áhorfandi stakk upp á Covid-draumnum, þar sem þeir Auddi, Sveppi, Gillz, Pétur Jóhann, Steindi og Rikki G söfnuðu stigum í gegnum Skype.
Annar vill senda þá á Suðurskautið: „Antarctica draumurinn. Hrinda mörgæsum og fara í sleik við ísbjörn. Djöfull er ég til í það.“ Þegar viðkomandi var bent á að engir ísbirnir væru þeim megin á hnettinum kom hann með frumlega lausn: „Þá fá þeir bara Jón Gnarr til að flytja einn ísbjörn á pólinn, þetta er ekki flókið.“
Sumir stungu upp á Ástralíu, aðrir upp á Afríku.
Einn Twitter-notandi sagði: „Við sem samfélag megum ekki senda þessa náunga til Afríku.“ Bætti þá annar við: „Fyrst Samherji, svo þetta.“
Annar var því ósammála: „Jú plís! Og síðan Miðausturlanda!“