Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, hefur verið duglegur við að koma fyrirtækinu sem hann vinnur fyrir til varnar. Nú segir hann að Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður á RÚV og eiginmaður Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra Kveiks, fréttaskýringaþáttar RÚV, hafi eytt athugasemd sem hann skrifaði á Facebook-síðu Svavars þar sem málefni Samherja og RÚV voru til umfjöllunar.
Grunnt hefur verið á því góða milli Samherja og RÚV að undanförnu og hefur Samherji tekið upp á því að birta þætti á YouTube til að verjast ásökunum gegn fyrirtækinu, sem einna helst hefur verið fjallað um hjá RÚV.
Páll skrifar pistil á Vísi sem ber yfirskriftina: Athugasemdin sem Svavar Halldórsson eyddi, en þar vandar hann Svavari ekki kveðjurnar. Segist hann birta athugasemdina því lítillega breytta því „spyrna verði fótum við ritskoðun“ af þessu tagi eins og hann orðar það.
„Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður, vill ekki sjá umræðu um vinnubrögð fréttamanna Ríkisútvarpsins og eyddi athugasemd sem ég skrifaði við pistil sem hann birti á Facebook um þáttagerð Samherja,“ segir Páll í pistli sínum og bætir því að pistill Svavars hafi verið fullur af fúkyrðum og þar hafi þáttagerð Samherja verið fundið flest til foráttu.
Í pistli sínum gagnrýndi Svavar Samherja harðlega og sagði að með myndbandagerð sinni ætti að hræða fjölmiðla-, blaða-, og fréttamenn frá því að fjalla um myrkraverk Samherja. „Þarna er settur fram einhliða áróður af hendi launaðra málaliða um fullkomin aukaatriði í málinu,“ sagði Svavar og bætti við að hið margumtala skjal væri til og þá breyti engu hvort það sé kallað skýrsla, minnisblað eða Excel-skjal.
„Upplýsingarnar sem fram komu í skjalinu eru stóra málið. Það eru þær sem voru í rannsókn/athugun hjá Seðlabankanum. Takið eftir því að samherjamenn geta ekki rengt hinar eiginlegu tölur í skjalinu. Þeir vilja rugla fólk með níði, hálfkveðnum vísum, aðdróttunum eða hálfsannleik og smáatriðum sem engu skipta,“ sagði Svavar.
Páll segir í grein sinni á Vísi að Samherji hafi aldrei sagst vera fjölmiðill – hann sé ekki að miðla hefðbundnum fréttum heldur upplýsingum um eigið málefni.
„Í stað þess að fjalla um vinnubrögð Ríkisútvarpsins og þá staðreynd að starfsfólk RÚV getur ekki sannað fullyrðingar sínar úr Kastljósi er farið fram á ritvöllinn með fúkyrðum. Það gera þeir sem hafa vondan málstað að verja. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa þyrlað upp ryki í stað þess að fjalla efnislega um þær upplýsingar sem komu fram í þáttum Samherja.“
Pistil Páls má lesa í heild sinni hér og Facebook-færslu Svavars má sjá hér að neðan.
Samherja-svínarí er til rannsóknar í nokkrum löndum, útlenskir bankar loka á þá og nokkrir eru í varðhaldi fyrir að...
Posted by Svavar Halldórsson on Sunnudagur, 23. ágúst 2020