Skilur ekkert í Íslendingum: „Komm on, þið vitið hvernig á að díla við óveður“

Fjölmargir ferðamenn – bæði íslenskir og erlendir – voru þreyttir á uppákomunni á Keflavíkurflugvelli í gær þegar þeir þurftu að sitja tímunum saman í flugvélum vegna slæms veðurs á vellinum.

Fréttastofa RÚV ræddi til dæmis við einn, Jochem Joedhas frá Hollandi, en hann var á ferð með félaga sínum frá Boston til Amsterdam með millilendingu í Keflavík.

Undir venjulegum kringumstæðum tekur ferðalagið frá Boston til Keflavíkur um fimm klukkustundir. En Jochem og félagi hans þurftu að gera sér að góðu að sitja í vélinni í hátt í sólarhring, eftir að hafa beðið í vélinni í tólf klukkustundir á Keflavíkurflugvelli til viðbótar við fimm klukkustunda flugið.

Þegar fréttamaður RÚV spurði hann hvernig honum væri innanbrjósts sagðist hann bæði vera þreyttur og pirraður. Farþegar hafi fengið litlar upplýsingar um stöðu mála og hvað væri verið að gera til að koma fólki úr vélinni. „Af hverju erum við að bíða? Hvað er að gerast? Hverjir eru möguleikarnir? Þetta var pirrandi,“ sagði hann.

Jochem skaut svo á Íslendinga og sagði að þeir ættu að vita þjóða best hvernig ætti að takast á við almennilegt vetrarveður.

„Þetta er Ísland. Komm on, þið vitið hvernig á að díla við snjó og óveður. Hvar er búnaðurinn til að hjálpa okkur? Manni leið eins og dýri í búri en það góða var að allir héldu ró sinni.“