Skemmdarverk hafa verið unnin á húsnæði á Skólavörðustíg sem áður hýsti Rammagerðina. Þar hefur orðið „Skuld“ verið krotað aftur og aftur á húsið.
Hlöðver Sigurðsson, eigandi hússins, segist afar leiður vegna málsins í samtali við Hringbraut. Hann vildi ekki ræða málið nánar. „En ég tek það fram, að ég skulda ekki neinum neitt,“ segir hann.
Hann segist aldrei hafa lent í öðru eins á þeim tuttugu árum sem hann hefur átt húsið. Rammagerðin var um tíma ein vinsælasta ferðamannabúð landsins en hefur mátt muna fífil sinn fegurri vegna kórónukreppunnar.
Hringbraut/Valli
Hringbraut/Valli
Hringbraut/Valli