Skelli­hlæjandi Kristín: „Hægist á eld­gosinu í Ír­landi“

Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri náttúru­vá­vöktunar Veður­stofu Ís­lands, vekur at­hygli á skondinni inn­sláttar­villu sem Dr. Ste­ven J. Gibbons birtir á Twitter síðu sinni.

Þar hefur hann tekið mynd af er­lendri blaða­grein þar sem segir ein­fald­lega í fyrir­sögninni að það hægist á eld­gosinu í Ír­landi. Þar á aug­ljós­lega að standa Ís­landi og á ferðinni góð­lát­leg inn­sláttar­villa sem hvergi má sjá í greininni sjálfri.

„Fann þetta á Face­book,“ skrifar Ste­ven J. Gibbons og lætur fylgja með bros­kalla sem tákna eld­fjall og írska fánann. Kristín Jóns­dóttir, sem hefur vakið at­hygli á upp­lýsinga­fundum al­manna­varna vegna jarð­hræringa á Reykja­nesi deilir færslunni.

Sjá má að Kristínu finnst þetta mjög fyndin inn­sláttar­villa. „Hahah...“ skrifar skelli­hlæjandi Kristín ein­fald­lega.