Heldur ömurleg sjón mætti húsráðendum við Laugateig í Reykjavík eftir hádegi í gær en búið var að brjótast inn í íbúðina og leggja hana hreinlega í rúst.
Í íbúðinni býr Emil Christoffer Bager Holm ásamt vinkonu sinni og vetti hann Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta meðfylgjandi myndir.
Emil, sem hefur búið hér á landi í fimm ár, segir í samtali við Hringbraut að innbrotsþjófurinn hafi látið til skarar skríða á tímabilinu frá klukkan 13:30 til 14:10 í gær. Eins og sést á meðfylgjandi myndum var búið að leggja íbúðina í rúst. Húsgögnum var snúið á hvolf og hreinsað út úr skápum svo fátt eitt sé nefnt.
Innbrotsþjófurinn fór ekki tómhentur út því hann hafði á brott með sér skó, jakka, stuttermaboli, trefla, hanska og buxur svo eitthvað sé nefnt. Þetta kemur sér einkar illa fyrir Emil sem starfar meðal annars á leikskóla og er mikið úti við. Hefur Emil óskað eftir aðstoð frá góðhjörtuðum borgurum sem ef til vill eiga hlý föt í skápum sínum sem ekki eru lengur í notkun.
Lögregla er með málið til rannsóknar og segir Emil að hún hafi farið yfir upptökur úr öryggismyndavélum sem hafi náð að varpa ákveðnu ljósi á sökudólginn. Hann sést koma upp að húsinu á bifreið og tæma íbúðina á 25 mínútum eða þar um bil. Maðurinn sem um ræðir er hávaxinn og grannur með dökkt hár. Hann var í síðum svörtum jakka, virtist haltra og var á blárri Lexus-bifreið.
Hann segist þakklátur fyrir það að margir hafi sett sig í samband við hann eftir að hann greindi frá innbrotinu. Þeir sem hafa upplýsingar um málið geta haft samband við lögregluna en einnig er hægt að setja sig í samband við Emil í gegnum Facebook-síðu hans hér að neðan.
Hello I came home today to discover that we had had a break in at our place on Laugateigur in 105. A man went through...
Posted by Emil Christoffer Bager Holm on Þriðjudagur, 8. desember 2020