Yfirvöld í Argentínu hafa samþykkt frumvarp þess efnis að hinir efnameiri í landinu leggi meira til samneyslunnar en hinir efnaminni vegna kórónuveirufaraldursins.
Í frétt BBC kemur fram að þessi sérstaki skattur verði meðal annars notaður til kaupa á nauðsynlegum búnaði fyrir heilbrigðisstofnanir og sjúkrahús. Þá mun hluti renna til að styrkja lítil og meðalstór fyrirtæki og annar hluti fara til námsmanna í formi skólastyrks.
Þingið samþykkti frumvarpið á föstudag með 42 atkvæðum gegn 26.
Kórónuveirufaraldurinn hefur farið illa með efnahag Argentínu en ein og hálf milljón manna hefur smitast og tæplega 40 þúsund látist í faraldrinum til þessa.
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, segir að Íslendingar ættu að grípa til sömu aðgerða ekki seinna en strax.
„Fullkomlega eðlileg ráðstöfun í kreppu sem framkallar tekjutap hjá almenningi, ríki og sveitarfélögum en ýtir á sama tíma undir eignarverð, verð á fasteignum og hlutabréfum. Íslendingar ættu að gera þetta strax. Og velta í framhaldinu ofan af eyðileggingu á skattkerfinu á nýfrjálshyggjuárunum; leggja aftur á eignaskatta (eða auðlegðarskatt með háu gólfi), hækka fjármagnstekjuskatt og tekjuskatt fyrirtækja, leggja útsvar á fjármagnstekjur, leyfa sveitarfélögum að taka aftur upp aðstöðugjald á fyrirtæki, hækka erfðafjárskatt á umtalsverðar eignir o.s.frv.,“ segir Gunnar Smári í Facebook-hóp Sósíalistaflokksins.