Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður, segir að stórsigur Framsóknarflokks og fylgistap Sjálfstæðisflokksins um allt land séu tíðindi sveitarstjórnarkosninganna í gær.
Ólína gerir upp kosningarnar í pistli á Facebook-síðu sinni. Hún beið lengi eftir fyrstu tölum úr Reykjavík eins og margir aðrir en þær komu ekki fyrr en á öðrum tímanum í nótt. Endar hún pistilinn á þessum orðum:
„Á þessum milda vormorgni ætla ég ekki að ergja mig á því að tala um talningarvesenið í Reykjavík sem auðvitað var skandall sem eyðilagði kosningasjónvarpið. Það bíður betri tíma.“
Ólína segir að Framsókn haldi nú á fjöregginu í Reykjavík og veltir hún fyrir sér hvort það verði hlutskipti nýs forystumanns að mynda þar meirihluta utan um félagshyggjusjónarmið þar sem húsnæðismál, bætt þjónusta og almenningssamgöngur með borgarlínu verða þungamiðja. Eða að Framsókn leiði Sjálfstæðisflokk enn einu sinni til valda í hugsjónalausu samstarfi utan um völd og áhrif útvalinna.
„Spyr sú sem ekki veit. Hins vegar er Einar Þorsteinsson, sem reyndur fréttamaður til margra ára, auðvitað ekki skyni skroppinn. Ég leyfi mér þess vegna að vona að hann snúi sér að félagshyggjuflokkunum og myndi sterkan meirihluta utan um manneskjuleg málefni þar sem íbúar Reykjavíkur verða sjálfir í öndvegi. Vona það innilega.“
Ólína segir einnig að gaman hafi verið að fylgjast með árangri Pírata í borginni hvar innan raða er trúverðugt og frambærilegt fólk á borð Dóru Björt Guðjónsdóttur. Hún geti vonandi látið til sín taka á komandi kjörtímabili.
„Sósíalistar bættu við sig manni þannig að Sanna Magdalena fær þar með liðsauka við málflutning sinn og varðstöðu um málefni þeirra sem verst eru settir. Er það vel. Allt veltur þó á því hvernig til tekst með myndun nýs meirihluta í borginni, því veldur hver á heldur.“