„Skammarleg ákvörðun að segja upp starfsfólki sem hefur lagt líf og heilsu að veði“

BSRB mótmælir harðlega áformum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands um að segja upp öllu starfsfólki í ræstingum á starfsstöð stofnunarinnar í Vestmannaeyjum.

Stéttarfélögum hefur verið tilkynnt um að fyrirhugað sé að leggja niður starfsemi við ræstingar og fara í útboð á þjónustunni á næstu vikum.

„Það er skammarleg ákvörðun að segja upp starfsfólki sem hefur lagt líf og heilsu að veði í framlínunni í baráttunni við kórónaveiruna undanfarnar vikur,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Lög geri ráð fyrir því að þegar rekstur sé tekinn yfir af öðrum aðila beri að tryggja starfsmönnum störf á óbreyttum kjörum hjá þeim sem taki við rekstrinum, er fram kemur í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

Enginn sparnaður

Í ljósi þessa telur BSRB að enginn sparnaður muni nást með aðgerðinni á næstu árum og hún verði einungis til þess að valda starfsfólki „ama og óöryggi.“

Gríðarlegt álag hafi verið á þessu starfsfólki, eins og öðrum starfsmönnum í heilbrigðisþjónustunni. Nú þegar mikilvægi þeirra starfa ættu að vera öllum ljós ættu stjórnendur stofnunarinnar að leggja sig fram við að bæta kjör og starfsaðstæður þessa láglaunahóps í stað þess að afhenda þeim uppsagnarbréf.

„Þetta eru kaldar kveðjur frá yfirstjórn stofnunarinnar og við krefjumst þess að þessi ákvörðun verði dregin til baka. Það er óásættanlegt að þegar stofnanir grípa til hagræðingaaðgerða sé fyrst horft til tekjulægsta hópsins,“ segir Sonja.