Fiskikóngurinn sjálfur, Kristján Berg, segir að sér hafi verið hótað ofbeldi eftir að hann skammaði sjómenn á dögunum fyrir að afhenda fisk í því sem hann kallar drulluskítugum fiskikörum. Þetta kemur fram í Facebook færslu Kristjáns.
Þar segir hann að viðbrögð sjómanna hafi verið hörð og gróf. Hann fái ítrekað símhringingar frá reiðum mönnum sem ausi yfir hann svívirðingunum.
„OFBELDI – Fagmaður- Drullusokkur –Hótanir Er ég niðurbrotinn. JÁ Ætla ég að gefast upp. NEI. Ég og mitt fyrirtæki höfum orðið fyrir miklu aðkasti, hótunum og leiðindum vegna greinar minnar um skítugar umbúðir utan um íslenskt hráefni. Ég og mitt fyrirtæki eigum ekki að vera píluspjald „drullusokkanna“ Orð mín hafa verið slitin úr samhengi,“ skrifar Kristján.
Hann minnir á að hann hafi ekki kallað alla sjómenn drullusokka. „ÞAÐ SEM ÉG SAGÐI OG MEINA. A) Fagmaður er sá sem gengur vel um íslenskt hráefni af virðingu og með stolti. Setur í hreinar umbúðir, kælir vel afurðirnar, og gengur almennt vel um íslenskar auðlindir. Svoleiðis vill ég að allir séu. B) Drullusokkur er sá sem gengur ILLA um auðlindir okkar. Fer illa með íslenskt sjávarfang. Afhendir afurðir frá sér í DRULLUSKÍTUGUM umbúðum, gengur illa um auðlindir okkar. Ber enga virðingu fyrir starfinu sínu og íslenskum auðlindum.“
Hann segist vilja leiðrétta þennan misskilning. Því næst segist hann ætla að kæra til lögreglu suma þá sem hafa áreitt hann.
„Ég hef fengið sent til mín, á Snappchat, á messenger, símtöl og heimsóknir í verslun mína. þar hefur mér verið hótað ofbeldi, fyrirtækið mitt rifið niður, starfsfólk mitt áreitt og innhringingar þar sem rifið er kjaft og skellt á. Hver á í hlut? Það veit ég svo sem ekki, hver það er sem hringir inn og eys yfir okkur viðbjóðnum, en ég veit hverjir það eru sem senda mér hótanir og annað slíkt á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum, það er alltaf undir nafni. Eitthvað af þessu verður kært. Er bara að meta það,“ skrifar Kristján. Hann segist sakna þess að fisksalar styðji sig.
„Ég er þá að tala um sjómenn, fiskkaupendur, fiskverkendur, fiskmarkaði, vörubílstjóra og aðra er starfa í fiskiðnaðinum, jú og jafnvel neytendur fisks. Það er engu líkara en fólk vilji bara hafa sóðaskap og óþrifnað áfram í þessari grein. Ef þið viljið styðja mig. LÁTIÐ Í YKKUR HEYRA. Að mínu mati er það óásættanlegt. Óþrifnaður og annar viðbjóður í kringum matvæli á ekki samleið. Það er mín skoðun og hún breytist ekki, þó svo ég og mitt fyrirtæki og mitt starfsfólk fái þennan viðbjóð yfir okkur,“ skrifar Kristján.